Bíó og sjónvarp

Frábær póstur frá Channing Tatum hluti af Sony lekanum

Samúel Karl Ólason skrifar
Channing Tatum.
Channing Tatum. Vísir/AFP
Tölvupóstur leikarans Channing Tatum hefur nú litið dagsins ljós þar sem hann var hluti gagnanna sem stolið var út tölvukerfum Sony. Í póstinum fagnar leikarinn árangri myndarinnar 22 Jump Street. Hún hafði þá aflað meiri tekna en myndin Ted í flokki bannaðra gamanmynda.

„F YOU TED !!! SECOND OF ALLLL TIMMMMME BEEEOTCH!!!! COME ON JUMPSTREETERS WE GOT CATE BLANCHETT WIT DIS BOX OFFICE BITCHES!!!!!!!!“

Þetta er þó ekki það eina sem stendur í póstinum, en Channing Tatum fyllti um fimm blaðsíður í Microsoft Word af stöfunum H og A. Hér að neðan má sjá smá sýnishorn af póstinum.

„AAAAAAAAAAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAAHHAAHHAHAHAHA

HAHAHAHHAHAAHHAHAHAHAHAHAHAHAHHAAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAH

AHAHAHAHAHAHAHHAAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAH

AHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAAHAHHAAHAHHAHAHAHAHAHAHA

HAHAHAHAHAHAAHHAAHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHA

HAHAHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAAAAAAAAAAHAHAHAHAHAH

AHAHAHAHHAHAHAHAHAAHHAAHHAHAHAHAHAHAHAHHAHAAHHAHAHA“

Póstinn má sjá í heild sinni á síðunni Gawker.

Pósturinn er hluti samskipta Channing Tatum, meðleikari hans Jonah Hill, aðstoðar framkvæmdastjóri kvikmyndadeildar Sony og annarra yfirmanna fyrirtækisins. Þá höfðu þau nýlega séð tölur um hvernig myndinni gekk í kvikmyndahúsum á opnunarhelgi hennar.

Á heimasíðu Independent segir að Tatum hafi skrifað fyrstu 297 stafina sjálfur og afritað restina. Í heildina eru 14.553 H og A í póstinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.