Fótbolti

Birkir búinn að semja við Hammarby

Birkir ásamt Måns Söderqvist sem einnig samdi við Hammarby í dag.
Birkir ásamt Måns Söderqvist sem einnig samdi við Hammarby í dag. mynd/hammarby
Landsliðsbakvörðurinn Birkir Már Sævarsson skrifaði í dag undir samning við sænska félagið Hammarby.

Það hefur legið lengi í loftinu að Birkir Már gengi í raðir félagsins en Vísir greindi frá því í síðustu viku að hann myndi skrifa undir samninginn í dag.

Birkir Már hefur undanfarin sex ár spilað með norska félaginu Brann en hann féll með liðinu úr norsku úrvalsdeildinni á dögunum.

Hammarby vann sér sæti í sænsku úrvalsdeildinni á nýliðinni leiktíð og ætlar sér stóra hluti á næstu árum.


Tengdar fréttir

Birkir fer frá Brann eftir umspilið

Landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson spilar sinn síðasta leik fyrir Brann á miðvikudag. Liðsins bíða tveir leikir í umspili um laust sæti í efstu deild að ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×