Lífið

Beyonce og Jay-Z í Bláa lóninu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Starfsmenn lónsins vildu ekkert gefa uppi þegar haft var samband og spurst fyrir um gestina frægu.
Starfsmenn lónsins vildu ekkert gefa uppi þegar haft var samband og spurst fyrir um gestina frægu. Vísir/GVA
Bandaríska ofurparið Beyoncé og Jay-Z eru eins og fram er komið á landinu. Ætla þau að halda upp á 45 ára afmæli rapparans sem hann fagnar þann 4. desember.

Samkvæmt heimildum Vísis mætti stjörnuparið í Bláa lónið rétt upp úr klukkan fjögur í dag.

Þar láta þau stjana við sig í lúxusmeðferð og baða sig í bláleitu vatninu.

Starfsmenn lónsins vildu ekkert gefa uppi þegar haft var samband og spurst fyrir um gestina frægu.

beccs_d
En einhverjir gestir stóðust ekki mátið að segja frá eftir að þeir rákust á stjörnurnar.

„Ég er hérna í Bláa lóninu og ég synti rétt í þessu við hliðina á BEYONCÉ OG JAYZ. Ég er alls konar hamingjusöm núna,“ skrifaði Instagram-notandinn beccs_d á síðu sína nú í eftirmiðdaginn.

Fyrr í dag var ljósmyndara Vísis vísað frá jörð í Úthlíð þar sem talið er að parið dvelji í lúxussumarhúsi í eigu Jóhannesar Stefánssonar í Múlakaffi. Við húsið glæsilega var stödd þyrla sem talið er að sé í þjónustu söngvaranna.

Sumarhúsið sem um ræðir gengur undir nafninu The Trophy Lodge en það er í útjaðri sumarbústaðahverfisins. Ekki er hægt að keyra upp að því vegna öryggisgæslu. Í gegnum árin hafa mörg fyrirmenni og stórstjörnur gist í húsinu.

The Trophy Lodge þar sem talið er að Jay-Z og Beyoncé munu dvelja á meðan á heimsókn þeirra stendur.Vísir/Ernir

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.