Fótbolti

Rodriguez með tvennu í bikarnum

Rodriguez og Isco fagna í kvöld.
Rodriguez og Isco fagna í kvöld. vísir/getty
Real Madrid er komið áfram í spænska bikarnum eftir stórsigur á Cornella í kvöld.

Lokatölur 5-0 og 9-1 samanlagt enda vann Real fyrri leikinn, 4-1.

Real hvíldi margar af sínum helstu stjörnum í kvöld en það eru ekkert nema stjörnur í hópnum og því engir smá kappar að keppa í kvöld.

James Rodriguez skoraði tvennu og þeir Isco og Jese komust einnig á blað. Svo skoraði Cornella eitt sjálfsmark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×