Fótbolti

Auðvelt hjá Barcelona

Leikmenn Barcelona fagna marki Rakitic í kvöld.
Leikmenn Barcelona fagna marki Rakitic í kvöld. vísir/afp
Barcelona er komið með annan fótinn í næstu umferð spænska konungsbikarsins.

Barca vann stórsigur, 0-4, á neðrideildarliði Huesca á útivelli í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna og seinni leikurinn því formsatriði.

Staðan í hálfleik var 3-0 fyrir Barcelona en þeir Ivan Rakitic, Andrés Iniesta og Pedro skoruðu.

Í seinni hálfleik tóku leikmenn Börsunga það rólega og létu sér nægja að skora aðeins eitt mark. Það gerði Rafinha.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×