Fótbolti

Atletico Madrid upp á milli risanna

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Þriðji sigur Atletico í röð í deildinni
Þriðji sigur Atletico í röð í deildinni vísir/getty
Spánarmeistarar Atletico Madrid skelltu Elche 2-0 í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Staðan var 1-0 í hálfleik.

José María Giménez kom Atletico yfir á 16. mínútu og Mario Mandzukic skoraði seinna markið á 53. mínútu.

Atletico er með 32 stig í öðru sæti deildarinnar, stigi á eftir Real Madrid og stigi á undan Barcelona en bæði liðin eiga leik til góða. Elche er í næst neðsta sæti deildarinnar með 10 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×