Heilsa

Ungt fólk og kynlíf

sigga dögg kynfræðingur skrifar
Mynd/Getty
Vefmiðilinn Huffington Post hefur undanfarna mánuði sankað að sér reynslusögum ungs fólks af þeirra fyrstu skrefum í kynlífi með annarri manneskju.

Sögurnar eru frá bandarískum ungmennum og eru töluvert frábrugðnar en áhugaverðar og gefa ágæta innsýn inn í hugarheim og menningu kynlíf í Bandaríkjunum. Sumar frásagnir ríma á margan hátt við íslenskan veruleika nema það sem tengist skírlífisloforðum með tilheyrandi hringjum og biðinni eftir hjónabandi.

Hér eru nokkur dæmi.

Brie er 19 ára sem er „demi-sexual“ og segir kynlíf ekki vera mikilvægan hlut af sér og sér ekki fyrir sér að kynlíf muni verða það í framtíðinni. Hún segist ekki geta laðast að fólki fyrr en hún elski persónuleika þeirra. Hún hefur ekki stundað kynlíf með annarri manneskju og finnst það stórt skref að fá einhvern inn í sig. (sem er eflaust upplifun margra).

Garrison er 17 ára sem upplifir kynlíf sem stöðutákn og merki um vinsældir. Þá skiptir álit og samþykki vinahópsins á væntanlegum bólfélaga miklu máli og er í raun nauðsynlegur.

Kaelyn er 19 ára sem er í sambandi með dreng. Þau höfðu bæði stundað kynlíf með öðru fólki áður  en þau byrjuðu saman en fyrsta skiptið þeirra í samförum var það streituvekjandi og hann náði honum ekki upp. Hún kenndi sér um og þau ákvaðu að reyna þetta aldrei aftur. Þeim snérist seinna hugur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.