Fótbolti

Hólmfríður skrifaði undir tveggja ára samning

Fríða skrifar undir samninginn.
Fríða skrifar undir samninginn. mynd/avaldsnes
Landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir framlengdi í dag samningi sínum við norska félagið Avaldsnes.

Nýi samningurinn er til tveggja ára og Hólmfríður spilar því þar til 2016 að minnsta kosti.  

Fríða kann greinilega vel sig hjá félaginu því hún er búin að vera þar síðustu þrjú ár.

Hún hefur annars víða komið við á ferlinum. Lék lengstum með KR hér heima en hefur einnig spilað með Val.

Hún fór í bandarísku atvinnumannadeildina þar sem hún spilaði með liði Philadelphia. Einnig hefur hún leikið með Kristianstad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×