Fótbolti

Rodgers: Ég vissi hvað ég var að gera

Rodgers á hliðarlínunni í kvöld.
Rodgers á hliðarlínunni í kvöld. vísir/getty
Margir sökuðu Brendan Rodgers, stjóra Liverpool, um að kasta inn hvíta handklæðinu fyrir leikinn gegn Real Madrid í kvöld en liðið sem hann valdi fékk aðeins á sig eitt mark.

„Þú spurðir mig fyrir leik hvort liðið sem ég valdi væri nógu gott og þú sást hversu gott það var," sagði Rodgers nokkuð borubrattur eftir leik.

„Að koma hingað á þennan völl, þar sem Real vinnur venjulega með þrem til fjórum mörkum, og ná að halda jöfnum leik sýndi gæðin í okkar leik. Við höfðum hugrekki til að spila og ég er mjög stoltur af liðinu.

„Ég vissi hvað ég væri að gera og vissi að þetta væri rétta liðið í þennan leik. Við erum vonsviknir með úrslitin en það má samt taka margt jákvætt úr þessum leik.

„Við eigum enn möguleika á því að komast áfram í keppninni. Þetta er enn í okkar höndum."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×