Fótbolti

Barcelona vann nýliðana

Strákarnir í Barcelona voru í stuði í kvöld.
Strákarnir í Barcelona voru í stuði í kvöld. Vísir/Getty
Barcelona náði fjögurra stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 3-0 sigri á nýliðum Eibar í kvöld.

Staðan var markalaus í hálfleik, en Xavi Hernandez opnaði markareikninginn eftir klukkutíma leik. Neymar tvöfaldaði forystuna og LionelMessi rak síðasta naglann í líkkistu.

Með sigrinum er Barcelona með fjögurra stiga forystu á toppnum, en Real Madrid er í öðru sæti með átján stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×