Fótbolti

Fimm leikir án sigurs hjá Alfreð og félögum

Tómas Þór Þóraðrson skrifar
Alfreð Finnbogason er ekki kominn á blað hjá Sociedad.
Alfreð Finnbogason er ekki kominn á blað hjá Sociedad. vísir/getty
Alfreð Finnbogason og félagar hans í Real Sociedad halda áfram slæmu gengi sínu í spænsku 1. deildinni í fótbolta, en liðið tapaði fyrir Espanyol á útivelli í kvöld, 2-0.

Lucas Vázquez kom heimamönnum yfir með marki á sjöundu mínútu og í uppbótartíma bætti Christian Stuani við öðru marki fyrir Espanyol, 2-0.

Alfreð spilaði síðustu 20 mínútur leiksins en tókst ekki að skora frekar en í hin tvö skiptin sem hann hefur komið inn á sem varamaður í deildinni.

Síðan Sociedad vann magnaðan 4-2 sigur á Real Madrid í lok ágúst hefur liðið nú aðeins innbyrt tvö stig og tapað þremur af síðustu fimm leikjum sínum. Það er 15. sæti deildarinnar með fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×