Enski boltinn

Stuðningsmenn United biðla til Ronaldo

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Borðinn umræddi.
Borðinn umræddi. Mynd/Twitter
Stuðningsmannahópur Manchester United sem kallar sig United Reel hefur útbúið borða til að láta fljúga með næst þegar Real Madrid leikur leik í spænsku úrvalsdeildinni.

„Komdu heim Ronaldo - United Reel,“ stendur á borðanum en fjölmiðlar ytra hafa verið duglegir að fjalla um mögulega endurkomu Ronaldo til Manchester United.

Ronaldo er sagður vera óánægður með stefnu Real í leikmannamálum, sérstklega eftir að félagið lét þá Xabi Alonso og Angel Di Maria fara.

United Reel á meðlimi víðsvegar um heim og hefur beðið um fjárhagslegan stuðning til að láta verða af þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×