Fótbolti

Hernandez: Ronaldo er betri en Messi

Javier Hernandez, leikmaður Real Madrid.
Javier Hernandez, leikmaður Real Madrid. Vísir/Getty
Javier Hernandez, nýjasti liðsmaður Real Madrid, telur að Cristiano Ronaldo sé betri en Lionel Messi, leikmaður Barcelona og að hann sé besti leikmaður heims.

Hernandez sem gekk til liðs við Real Madrid undir lok félagsskiptagluggans segist hafa hrifist upp úr skónum á því að horfa á Ronaldo á æfingum undanfarna daga.

„Það er ekki spurning, Ronaldo er besti knattspyrnumaður í heimi. Ég hef séð hann gera ótrúlega hluti á æfingu undanfarna daga, það er ekki bara hvað hann gerir í leikjum heldur hvað hann gerir dags daglega,“ sagði Hernandez sem er spenntur fyrir tækifærinu sem Real Madrid gaf honum.

„Ég fór frá besta liðinu í Mexíkó til besta liðsins í Englandi og þaðan fór ég til besta liðs í heimi. Þetta er frábært tækifæri en ég verð að muna að ég er enn í eigu Manchester United og ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti með sér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×