Körfubolti

Hamar verður án fyrirliðans í vetur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íris, til hægri, verður ekki með Hamri í vetur.
Íris, til hægri, verður ekki með Hamri í vetur. Vísir/ÓskarÓ
Íris Ásgeirsdóttir verður ekki með liði Hamars í Domino's deild kvenna í körfubolta á komandi tímabili, en hún ber barn undir belti. Þetta kemur fram á karfan.is.

Íris, sem er 27 ára gömul, skoraði 12,1 stig, tók 4,5 fráköst og gaf 2,6 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðasta tímabili.

Hamar hefur leik í Domino's deildinni gegn Grindavík í Röstinni 8. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×