Fótbolti

Deulofeu lánaður til Sevilla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Deulofeu á ferðinni í sínum fyrsta landsleik með Spáni.
Deulofeu á ferðinni í sínum fyrsta landsleik með Spáni. Vísir/Getty
Spænski kantmaðurinn Gerard Deulofeu leikur sem lánsmaður með Sevilla á næstu leiktíð.

Deulofeu, sem er samningsbundinn Barcelona, var lánaður til Everton í fyrra og þótti standa sig vel í ensku úrvalsdeildinni.

Deulofeu hefur leikið með öllum yngri landsliðum Spánar, en hann lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Bólivíu í vor.

Sevilla hafnaði í 5. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, auk þess sem liðið hrósaði sigri í Evrópudeildinni.


Tengdar fréttir

Deulofeu valinn í spænska landsliðið

Gerard Deulofeu hefur verið valinn í spænska landsliðshópinn fyrir vináttulandsleik gegn Bólivíu í Sevilla 30. maí næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×