Fótbolti

Sociedad tapaði í Baskaslag

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð tókst ekki að skora í kvöld.
Alfreð tókst ekki að skora í kvöld. Facebook-síða Real Sociedad
Real Sociedad beið lægri hlut fyrir Deportivo Alavés í vináttuleik í kvöld.

Leikið var á Estadio de Mendizorroza, heimavelli Deportivo Alavés sem er frá Baskalandi, líkt og Sociedad.

Deportivo Alavés komst í 3-0 áður en Imanol Agirretxe minnkaði muninn fyrir Sociedad.

Alfreð Finnbogason lék síðustu 13 mínútur leiksins fyrir Sociedad.

Sociedad mætir Aberdeen í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn kemur. Spænska liðið leiðir 2-0 eftir fyrri leikinn.


Tengdar fréttir

Alfreð skoraði | Ensku stórliðin unnu

Arsenal, Liverpool og Chelsea unnu öll sigra í æfingaleikjum sínum fyrir komandi tímabil í dag og Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Real Sociedad sem tapaði fyrir Ajax 3-1 í dag.

Alfreð í læknisskoðun hjá Real Sociedad

Samkvæmt heimildum Íþróttadeildar 365 þá flaug landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason út í morgun til þess að gangast undir læknisskoðun hjá spænska úrvalsdeildarliðinu Real Sociedad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×