Fótbolti

Bale búinn að styrkja sig í sumar

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Velski kantmaðurinn Gareth Bale virðist vera í gríðarlega góðu formi ef marka má myndir frá undirbúningstímabili Real Madrid í Bandaríkjunum.

Bale sem gekk til liðs við Real Madrid hlaut töluverða gagnrýni fyrir fyrstu mánuði sína hjá félaginu en hann missti af undirbúningstímabili liðsins og var töluvert meiddur fyrstu mánuðina.

Bale varaði menn við í byrjun sumarsins að hann yrði enn betri á næsta tímabili en hann virðist hafa lagt mikla áherslu á að auka líkamlegan styrk sinn.

Ljóst er að það verður afar erfitt að stoppa sóknarlínu Real Madrid á næsta tímabili með Bale í þessu formi, Cristiano Ronaldo og Karim Benzema.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×