Íslenski boltinn

Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Fjölnir - Fylkir 3-3 | Glæsimark Illuga tryggði Fjölni stig

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Valli
Glæsilegt jöfnunarmark Illuga Þórs Gunnarssonar af þrjátíu metra færi tryggði Fjölnismönnum  stig í 3-3 jafntefli gegn Fylki í kvöld.

Heimamenn byrjuðu leikinn betur og náðu verðskuldað forystunni um miðbik hálfleiksins. Cristopher Paul Tsonis tók glæsilega á móti sendingu Ragnars Leóssonar og renndi boltanum framhjá Bjarna Þórði Halldórssyni í marki Fylkis.

Þrátt fyrir að vera lenda undir virtust leikmenn Fylkis ekki ætla að vakna til lífsins. Gunnar Már Guðmundsson bætti við marki fyrir Fjölni rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og kom heimamönnum í 2-0. Þá renndi Tsonis boltanum á Gunnar sem skaut fallegu skoti yfir Bjarna Þórð og stuttu síðar flautaði Gunnar Jarl Jónsson, dómari leiksins til hálfleiks.

Um miðbik seinni hálfleiks kom hinsvegar frábær kafli sem Fylkismenn notfærðu sér til þess að snúa leiknum sér í hag.

Stefán Ragnar Guðlaugsson minnkaði muninn um miðbik hálfleiksins með föstu skoti af fjærstöng og skyndilega voru Fylkismenn komnir aftur inn í leikinn.

Kristján Valdimarsson jafnaði metin aðeins tveimur mínútum síðar þegar hann fékk sendingu inn á markteig þar sem hann var ódekkaður og skallaði boltann í netið af stuttu færi.

Sousa virtist svo hafa tryggt Fylkismönnum stigin þrjú þegar hann kom gestunum yfir fimm mínútum fyrir leikslok. Aftur kom fyrirgjöf þar sem enginn dekkaði sóknarmann og í annað sinn á skömmum tíma fékk leikmaður Fylkis skallafæri af stuttu færi sem hann nýtti.

Þegar allt virtist stefna í sigur Fylkis kom jöfnunarmark Fjölnis eins og þruma úr heiðskíru lofti. Illugi Þór Gunnarsson fékk þá boltann þrjátíu metrum frá marki, tók boltann á kassann og skoraði með fallegu langskoti sem sveif yfir Bjarna Þórð. Leikmenn Fylkis náðu að taka miðjuna en komust ekki lengra áður en Gunnar Jarl flautaði leikinn af.

Gott stig fyrir Fjölnismenn í ljósi þess að liðið lenti undir skömmu fyrir lok leiksins en spilamennska liðsins í seinni hálfleik var slök og þarf liðið að fara að safna inn fleiri stigum ætli þeir sér ekki að sogast niður í fallbaráttuna.

Ásmundur getur verið ánægður með spilamennsku Fylkis í fyrri hálfleik en annan leikinn í röð gerðu leikmenn liðsins sér erfitt fyrir með slakri frammistöðu í fyrri hálfleik.

Illugi: Ekki tími fyrir annað en skot
Vísir/Valli
„Miðað við seinni hálfleikinn þá erum við sáttir við þetta stig,“ sagði Illugi Þór Gunnarsson, leikmaður Fjölnis, eftir leikinn en Illugi skoraði jöfnunarmark Fjölnis með glæsilegu skoti á lokasekúndum leiksins.

„Ég heyrði Gunnar Jarl segja að það væru 20 sekúndur eftir þegar Beggi spurði hann og það var ekki tími fyrir annað en skot.“

Fjölnir komst í 2-0 undir lok fyrri hálfleiks en góður kafli Fylkismanna í seinni hálfleik sneri taflinu við og virtust gestirnir ætla að taka stigin þrjú áður en Illugi jafnaði metin.

„Þetta var ágætt í fyrri en það var svosem ekki mikið í gangi. Það duttu inn tvö mörk en manni fannst að það væri ekki mikið milli liðanna en spilamennskan í seinni hálfleik var mjög slök. Það vantaði alla baráttu í liðið í seinni hálfleik, þeir átu alla seinni bolta og það var erfitt að eiga við það.“

Biðin lengist því eftir sigri en Fjölnir hefur ekki unnið leik frá 2-1 sigrinum gegn Þór fyrir norðan í annarri umferð.

„Við erum búnir að vera að spila við toppliðin sem fyrirfram er ekki hægt að búast við mörgum stigum úr. Auðvitað vill maður fá þrjú stig og framundan eru spennandi leikir sem við getum vonandi farið að næla í fleiri stig í. Það eru allir brattir hér og við komum tvíefldir í næstu leiki.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Illugi skorar með glæsilegu skoti gegn Fylki en hann gerði það einnig þegar liðin mættust síðast á Fjölnisvelli árið 2009.

„Það hefur hitt þannig á, að skora alltaf flott mörk gegn Fylki,“ sagði Illugi léttur.

Ásmundur: Væri lengi að þylja upp hálfleiksræðuna
Vísir/Valli
„Við vorum slakir í fyrri hálfleik og fengum á okkur tvö ódýr mörk,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, sem tók undir að það hefðu tvö stig tapast í kvöld.

„Miðað við seinni hálfleikinn þá já. Við sýndum mikinn styrk með því að snúa stöðunni okkur í hag og að vera komnir í forystu en við gloprum því niður í lokin. Ég tek út úr þessu að við sýndum mikinn karakter með því að koma til baka,“

Ásmundi fannst gríðarlegur munur á spilamennsku liðsins í fyrri og seinni hálfleik en þetta hefur einkennt liðið undanfarnar vikur.

„Fyrri hálfleikurinn var áframhald af síðustu vikum. Við höfum verið að fá á okkur ódýr og of mörg mörk í fyrri hálfleik en loksins náðu leikmenn að rífa sig upp og sýna sitt rétta andlit í seinni hálfleik,“

Ásmundur gat ekki þulið upp hálfleiksræðuna en viðurkenndi að skilaboðin hefðu verið skýr.

„Það er full langt mál að fara yfir þetta allt saman en við reyndum bara að fara yfir hvað það væri sem við hefðum gert rangt. Ég verð að hrósa strákunum fyrir það hvernig þeir komu inn í seinni hálfleikinn,“ sagði Ásmundur.

Vísir/Valli

Tengdar fréttir

Loksins sigrar hjá Eyjamönnum og Blikum

ÍBV og Breiðablik unnu bæði sinn fyrsta sigur í Pepsi-deildinni í fótbolta í kvöld og þar með hafa öll tólf lið deildarinnar fagnað sigri í fyrstu tíu umferðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×