Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Glæsileg mörk og klúður sumarsins | Myndbönd

Ásgeir Eyþórsson dettur í baráttunni við Christopher Tsonis í fyrsta marki Fjölnis.
Ásgeir Eyþórsson dettur í baráttunni við Christopher Tsonis í fyrsta marki Fjölnis. vísir/valli
Tíunda umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum nótum.

FH og Stjarnan eru enn taplaus á toppi deildarinnar. FH er með 24 stig en Stjarnan 22 stig. KR er komið upp í þriðja sætið eftir sigur á Víkingum sem töpuðust sínum fyrsta leik í rúman mánuð. Þá unnu Blikar og Eyjamenn loks sinn fyrsta sigur í deildinni.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum sex leikjum umferðarinnar:

KR - Víkingur

Keflavík - ÍBV

FH - Valur

Fram - Stjarnan

Fjölnir - Fylkir

Breiðablik - Þór

Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, horfir á Elfar Árna Aðalsteinsson fagna marki fyrir Breiðablik.vísir/valli
Góð umferð fyrir ...

... Jeppe Hansen, Stjörnunni

Framherjinn öflugi kvaddi Pepsi-deildina með stæl, en hann skoraði tvö mörk og tryggði Garðbæingum sigur á Fram eftir að liðið lenti manni undir. Fyrra markið sem hann skoraði var hreint stórkostlegt en hann fíflaði þá þrjá leikmenn Framara upp úr skónum áður en hann renndi boltanum undir Ögmund Kristinsson í markinu. Myndband af því má sjá hér neðar í uppgjörinu.

... Blika og Eyjamenn

Loksins unnu Breiðablik og ÍBV og það í sömu umferðinni. Blikar lögðu Þórsara í Kópavogi en Eyjamenn sóttu þrjú stig í spennandi leik til Keflavíkur. Gríðarlega þýðingamiklir sigrar fyrir bæði lið, sem vonast væntanlega til að þetta sé byrjunin á frekari stigasöfnun. Atli Fannar Jónsson fær sérstakt lof fyrir sína frammistöðu í liði ÍBV.

... Þá sem horfðu á sjónvarpsleikinn

Þeir sem ekki nenntu út í kuldann í gærkvöldi og ákváðu að horfa á sjónvarpsleik Fjölnis og Fylkis fengu eitthvað fyrir áskriftaraurinn. Boðið var upp á stórkostlegan sex marka leik með ótrúlegum mörkum, sveiflum og dramatík. Frábær leikur.

Sándor Matus kýlir boltann frá marki Þórs í gær.vísir/getty
Erfið umferð fyrir ...

... Bjarna Guðjónsson, þjálfara Fram

Framarar töpuðu fyrir Stjörnunni þrátt fyrir að komast marki yfir og vera manni fleiri. Tilraun Bjarna að setja bróður sinn Jóhannes Karl í miðvörðinn virkaði ekki, en Jói Kalli átti aftur dapran dag. Eftir leikinn veitti Bjarni svo engin viðtöl og fékk skömm í hattinn í beinni útsendingu í Pepsi-mörkunum.

... Óttar Stein Magnússon, Víkingi

Austfirðingnurinn átti að koma nýliðunum yfir á móti Íslandsmeisturum KR í fyrri hálfleik en á einhvern óskiljanlegan hátt hitti hann ekki boltann nánast á marklínu fyrir auðu marki. Óttar þrumaði boltanum svo í samherja seinna í leiknum sem varð að stungusendingu fyrir Óskar Örn Hauksson sem kom KR yfir. Óttar hefur ekki sofið mikið í nótt. Myndband af þessu klúðri sumarsins má sjá hér að neðan.

... Þórsara

Norðanmenn töpuðu sínum sjöunda leik í Pepsi-deildinni í gær þegar þeir lágu í valnum gegn Breiðabliki. Eftir að Þór vann sinn fyrsta leik gegn Fylki í 5. umferðinin hafa nú tekið við fimm leikir án sigurs og uppskeran aðeins tvö stig. Chuck er ekki ennþá farinn að spila þó hann sé á bekknum og Páll Viðar segir Þórsliðið á réttri leið. Þórsarar eru á botninum með fimm stig eftir tíu leiki.

Fjölnismenn og Fylkismenn takast á í Grafarvoginum í gærkvöldi.vísir/valli
Tölfræðin:

*KR-ingar hafa unnið 11 deildarleiki í röð á KR-vellinum og alls náð í 40 stig af 42 mögulegum í deildarleikjum sínum í Frostaskjólinu undanfarin tvö tímabil.

*Markatala KR-inga í fyrri hálfleik í fyrstu tíu leikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar er -5 (5-10) en í seinni hálfleik er marktalan KR-liðsins hinsvegar +9 (10-1).

*Sigurmark Eyjamanna á móti Keflavík var fyrsta mark ÍBV-liðsins í uppbótartíma í sumar (fyrri og seinni hálfleik) og markatala liðsins í uppbótartíma er nú -5 (1-6). Eyjamenn voru fyrir leikinn búnir að fá á sig fimm mörk á síðustu tíu mínútum leikjanna sem höfðu öll kostað þá stig.

*Keflvíkingar eru búnir að fá á sig 7 af þeim 11 mörkum sem þeir hafa fengið á sig í Pepsi-deildinni í sumar eftir að 82 mínútur eru liðnar af leikjunum. Markatala liðsins á fyrstu 82 mínútunum er hinsvegar 16-4.

*Fjölnismenn hafa verið 2-0 yfir í hálfleik í þremur leikjum í sumar en hafa aðeins skorað eitt mark í fyrri hálfleik í hinum sjö leikjunum sínum.

*Fylkisliðið hefur unnið seinni hálfleik í síðustu tveimur deildarleikjum sínum með markatölunni 5-2 en það hefur samt aðeins skilaði Fylkismönnum einu stigi.

*Jeppe Hansen náði aðeins að skora 1 mark á fyrstu 390 mínútum sínum með Stjörnunni í Pepsi-deildinni en skoraði síðan 5 mörk á síðustu 308 mínútunum sínum með Garðabæjarliðinu.

*Framarar hafa tapað 7 af síðustu 9 deildarleikjum sínum á Laugardalsvellinum og ekki fagnað deildarsigri á Þjóðarleikvanginum í sex síðustu leikjum (1 jafntefli,l 5 töp). Framarar hafa oftar fengið á sig fjögur mörk í síðustu 9 deildarleikjum sínum á Laugardalsvellinum (3 sinnum) en þeir hafa fagnað sigri (1 sinni).

*Framherjar Valsmanna hafa ekki skorað í síðustu fimm leikjum en öll sex mörk Valsliðsins á þessum tíma hafa verið mörk varnarmanna (3), miðjumanna (2) eða sjálfsmark mótherja (1).

Davíð Þór Viðarsson og Iain Williamson í leik FH og Vals.vísir/arnþór
Skemmtilegir punktar úr boltavaktinni:

Ingvi Þór Sæmundsson á Kópavogsvelli:

„Í óspurðum fréttum er það helst að söngvarinn í Sóldögg stendur vaktina í miðasölunni hér á Kópavogsvelli. Eða allavega einhver mjög líkur honum.“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á KR-velli:

„Víkingar spila í fyrsta sinn í bláu í kvöld. Mjög skrýtið að sjá þá. Eins og þeir séu í bláu vesti yfir hvítum búningi.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Elfar Freyr Helgason, Breiðabliki - 8

Stefán Ragnar Guðlaugsson, Fylki - 8

Atli Guðnason, FH - 8

Ögmundur Kristinsson, Fram - 8

Jeppe Hansen, Stjörnunni - 8

Orri Freyr Hjaltalín, Þór - 3

Haukur Páll Sigurðsson, Val - 3

Jóhannes Karl Guðjónsson, Fram - 3

Björgólfur Takefusa, Fram - 3

Umræðan #pepsi365

Flottasta mark umferðarinnar: Klúður sumarsins: Öll mörk 10. umferðar:

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×