Fótbolti

Bernat til Bayern

Bernat er hér í baráttu við Ronaldo.
Bernat er hér í baráttu við Ronaldo. vísir/getty
Bayern München er byrjað að styrkja sig fyrir átök næsta vetrar og í dag keypti félagið leikmann frá Valencia.

Sá heitir Juan Bernat og getur spilað bæði sem bakvörður og kantmaður. Þetta er 21 árs strákur sem er alinn upp hjá Valencia.

Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Valencia árið 2011 og skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið árið eftir.

Bernat hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Spánverja og var í U-19 ára liði Spánverja sem vann EM árið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×