Fótbolti

Di Stefano látinn

Di Stefano er hér með Gareth Bale.
Di Stefano er hér með Gareth Bale. vísir/getty
Spænska knattspyrnugoðsögnin Alfredo di Stefano er látinn 88 ára að aldri.

Hann fékk hjartaáfall á laugardag og náði aldrei að jafna sig. Ríkir mikil sorg í Madrid vegna andláts hans.

Di Stefano varð Evrópumeistari átta sinnum. Fimm sinnum vann hann Evrópukeppnina sem leikmaður. Hann náði einnig að gera lið Valencia að spænskum meisturum.

Hann hefur verið heiðursforseti Real Madrid síðan árið 2000 enda dáðasti leikmaður í sögu félagsins. Hann skoraði 216 mörk í 282 leikjum með félaginu. H

Di Stefano lauk knattspyrnuferlinum hjá Espanyol árið 1966 og hann endaði þjálfaraferilinn með þvi að stýra sínu félagi leiktíðina 1990-91.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×