Íslenski boltinn

Þórir frá næstu vikurnar

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Þórir Guðjónsson í leik gegn KR.
Þórir Guðjónsson í leik gegn KR. Vísir/Daníel
Þórir Guðjónsson, leikmaður Fjölnis tognaði á liðbandi í leik Fjölnis og Stjörnunnar á dögunum og verður ekki með liðinu næstu vikurnar. Þetta staðfesti Þórir í samtali við Vísi.

Þórir byrjaði tímabilið vel í liði Fjölnis og skoraði þrjú mörk í fyrstu sex leikjunum en meiddist í leiknum á sunnudaginn. Hann mun að öllum líkindum missa af leikjum liðsins gegn Fylki, ÍBV og Víking.

Fjölnir tekur á móti Fylki á miðvikudaginn og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Eftir góða byrjun hafa Fjölnismenn tapað síðustu fjórum leikjum og hafa nýliðarnir ekki unnið leik í Pepsi deildinni frá 8. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×