Íslenski boltinn

Bjarni veitti engin viðtöl

Vísir/Pjetur
Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, veitti fjölmiðlum ekki viðtöl eftir 2-1 tap liðsins gegn Stjörnunni í Pepsi-deild karla í gær.

Bjarni sendi aðstoðarþjálfara sinn, Úlf Blandon, í viðtal við Stöð 2 Sport að leik loknum en veitti ekki öðrum fjölmiðlum viðtal þótt eftir því hafi verið leitað.

Fram komst yfir snemma leiks í gær en Stjarnan náði að snúa leiknum sér í vil með tveimur mörkum frá Jeppe Hansen þó svo að Atli Jóhannsson hafi fengið að líta rauða spjaldið á 36. mínútu leiksins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×