Heilsa

Einn af hverjum fjórum snýr aldrei aftur

K2 er talið hættulegasta fjall heims
K2 er talið hættulegasta fjall heims Mynd/getty
Ef að þú hefur áhuga á klifri og fjallamennsku eða bara spennu upp á líf og dauða þá er heimildarmyndin The Summit mynd sem að þú verður að horfa á.

Myndin fjallar um hóp af reyndu fjallafólki sem á sér þann draum heitastan að klífa fjallið K2. K2 er næsthæsta fjall í heimi á eftir Mt. Everest en jafnframt talið það hættulegasta. Að meðaltali deyr einn af hverjum fjórum sem reyna við fjallið.

Myndin fjallar sem fyrr segir um hóp fólks hvaðanæva úr heiminum sem leggur í þessa hættuför. Sum þeirra komast heil heim en önnur snúa aldrei aftur.

Myndin hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna og vel þess virði að horfa á, hvort sem að þú hefur áhuga á þessu sporti eða ekki.

The Summit Official Trailer from Image Now on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.