Bíó og sjónvarp

Fyndnustu konur í Hollywood búa til bíómynd

Maya Rudolph, Tina Fey og Amy Poehler
Maya Rudolph, Tina Fey og Amy Poehler Vísir/Getty
Maya Rudolph hefur gengist til liðs við Tinu Fey og Amy Poehler í nýjustu kvikmynd grínistanna, The Nest.

Poehler og Fey leika í myndinni systur sem talast ekki við. Þær þurfa hinsvegar að snúa aftur heim á æskuslóðir sínar því að foreldrar þeirra hyggjast selja húsið sem þær ólust upp í.

Rudolph kemur til með að leika æskuvinkonu systranna.

Fey, Poehler og Rudolph léku saman í Saturday Night Live á árunum 2001 til 2006, en þetta verður í fyrsta sinn sem þríeykið leikur saman í bíómynd.

Fey og Poehler verða einnig framleiðendur myndarinnar. Jason Moore kemur til með að leikstýra handritinu, sem er eftir Paulu Pell, einn handritshöfunda SNL.

James Brolin leikur föður stúlknanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×