Fótbolti

Rakitic samdi við Barcelona

Rakitic er hér á ferðinni í opnunarleik HM gegn Brasilíu.
Rakitic er hér á ferðinni í opnunarleik HM gegn Brasilíu. vísir/getty
Barcelona er búið að finna arftaka Cesc Fabregas hjá félaginu en Fabregas samdi við Chelsea á dögunum.

Hinn eftirsótti Króati Ivan Rakitic er nefnilega búinn að skrifa undir fimm ára samning við spænska stórliðið.

Þessi 26 ára gamli miðjumaður kemur til Barcelona frá Sevilla þar sem hann fór á kostum síðasta vetur.

Rakitic hefur spilað 62 landsleiki fyrir Króata. Hann kom til Sevilla frá Schalke í janúar árið 2011. Hann spilaði 149 leiki fyrir Sevilla og skoraði í þeim leikjum 32 mörk.

Þetta eru fyrstu stóru leikmannakaup Barcelona síðan Luis Enrique var ráðinn sem þjálfari félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×