Bíó og sjónvarp

Lupita leikur í Star Wars

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Leikkonan Lupita Nyong'o er búin að hreppa hlutverk í nýju Star Wars-myndinni, Star Wars: Episode VII, í leikstjórn J.J. Abrams.

Lupita hlaut Óskarsverðlaunin á árinu fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni 12 Years a Slave en óljóst er hvaða persónu hún leikur í Star Wars.

Þá hefur Gwendoline Christie, sem þekktust er úr sjónvarpsþáttunum Game of Thrones, einnig landað hlutverki í myndinni.

Í öðrum hlutverkum í myndinni eru John Boyega, Daisy Ridley, Adam Driver, Oscar Isaac, Andy Serkis, Domhnall Gleeson, Max von Sydow, Harrison Ford, Carrie Fisher, Mark Hamill, Anthony Daniels, Peter Mayhew, og Kenny Baker.

Tökur standa nú yfir og verður nýja Star Wars-myndin frumsýnd í desember á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.