Bíó og sjónvarp

Dakota Fanning reynir að missa meydóminn

Dakota Fanning
Dakota Fanning Vísir/Getty
Dakota Fanning og Elizabeth Olsen leika aðalhlutverk í hinni væntanlegu Very Good Girls.

Í myndinni leika þær stöllur bestu vinkonur sem eru nýlega útskrifaðar úr menntaskóla sem reyna að missa meydóminn sumarið áður en þær fara í háskóla. 

Þær falla báðar fyrir sama listamanninum og ein þeirra stofnar til sambands með honum, á bakvið hina.

Myndin, sem er eftir Naomi Fener, var frumsýnd á Sundance í janúar 2013, en verður tekin til sýninga vestanhafs í sumar.

Í myndinni leika líka Demi Moore, Richard Dreyfuss, Ellen Barkin, Peter Sarsgaard og Clark Gregg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×