Körfubolti

Af hverju fær Kobe þennan risasamning?

Jürgen Klinsmann.
Jürgen Klinsmann. vísir/getty
Landsliðsþjálfari bandaríska knattspyrnulandsliðsins, Jürgen Klinsmann, segist að mörgu leyti ekki skilja bandarískt íþróttalíf.

Þjóðverjinn segir það vera furðulegan sið hjá bandarískum íþróttaliðum að gefa leikmönnum sem komnir eru vel á aldur risasamninga.

Tók hann sem dæmi samninginn sem Kobe Bryant gerði við LA Lakers í fyrra.

"Þetta gerist alltaf í Bandaríkjunum. Af hverju fær Kobe Bryant tveggja ára samning sem færir honum tæpa sex milljarða?," sagði Klinsmann hissa.

"Fær hann þennan samning út af því sem hann mun gera í þessi tvö ár? Auðvitað ekki. Hann er að fá þennan pening fyrir það sem hann er búinn að afreka. Það er algjörlega glórulaust. Af hverju er verið að borga mönnum fyrir vinnu sem þeir eru búnir að vinna?"

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×