Skoðun

Betri Garðabær með þinni þátttöku

María Grétarsdóttir og Ingvar Arnarson skrifar
Garðabær er góður bær og um það erum við flest sammála.  Hins vegar teljum við að Garðabæ megi gera að enn betri bæ með þátttöku enn fleiri íbúa í ákvarðanatöku í málefnum sem varða okkar öll. Þannig þarf að gera verulega bragarbót í rekstri bæjarins. Íbúar eiga að hafa um það að segja í hvað skattfé okkar allra er varið. Við, fólkið í bænum, eigum að geta kosið um í hvaða verkefni önnur en skylduverkefni, skattfé okkar er varið, sér í lagi þegar þær greiðslur nema hundruðum milljóna króna.

Þá er það lítið mál að gera öllum kleift að fylgjast með útgjöldum og fjárreiðum bæjarins í gegnum vef Garðabæjar með því að gera þessar upplýsingar aðgengilegar rafrænt. Þannig eykst gagnsæi og aðhald í bæjarrekstrinum. Við, fólkið í bænum eigum að geta treyst því að bæjaryfirvöld virði sínar eigin innkaupareglur þannig að að tryggt sé að gengið sé að hagstæðustu tilboðum hverju sinni og að allir eigi möguleika á að sinna verkefnum fyrir bæinn.

Þá er orðin brýn þörf að efla skóla- og velferðarmál. Öll börn eiga að njóta jafnræðis í bænum hvort heldur er varðar skóla, tónlistarnám eða íþrótta og æskulýðsstarf.  Þannig er það ekki í dag. Framlag bæjarsjóðs með hverju barni í grunnskóla (án húsnæðiskostnaðar) er hærra til einkaskóla, heldur en bæjarskóla í bænum.

Ingvar Arnarson, skipar 2. sæti á lista FÓLKSINS- í bænum.
Biðlistar eru til náms í tónlistarskóla. Gera þarf öllum börnum kleift að iðka íþróttir að eigin vali, óháð efnahag eða fjölskyldustærð. Listi FÓLKSINS í bænum hefur kynnt tillögur í þessum efnum þannig að auðveldlega megi laga þessi mál. Tillögurnar hafa einnig snúið að því hvernig bæta þurfi þjónustu við fatlað fólk og þjónustu við eldri borgara í bænum og gera hana samþættari og hægt verði að leita eftir þjónustu á einum stað í stað margra.

Við viljum sjá byltingu í stígagerð fyrir hjólreiða- og göngufólk og að bærinn leiti sérfræðiaðstoðar í því sambandi. Garðbæingar eiga að hafa um það að segja hvar við viljum að göngustígar séu lagðir í Garðabæ, til að mynda við hraunjaðarinn neðan við Flatir, á Álftanesi eða um Arnarnesið. Leita á samstöðu meðal bæjarbúa um slíkt átak og það á ekki að vera ákvörðun fárra að þeir séu lagðir eða ekki lagðir eða hvar.  Það á heldur ekki að vera ákvörðun fárra hvort eða hvenær farið er í fjárfrekar veglagningar um náttúruperlur í landi Garðabæjar. Hlustum á raddir fólksins í bænum.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×