Bíó og sjónvarp

Ólafur Darri ræðir við Liam Neeson í nýrri stiklu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson er áberandi í nýrri stiklu fyrir kvikmyndina A Walk Among Tombstones með stórleikaranum Liam Neeson í aðalhlutverki.

Undir lok stiklunnar hoppar Ólafur Darri síðan niður af húsþaki.

A Walk Among Tombstones er frumsýnd í Bandaríkjunum í haust en Liam leikur fyrrverandi löggu sem starfar sem einkaspæjari.

Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Lawrence Block en Scott Frank bæði leikstýrir og skrifar handrit myndarinnar.

Frægðarsól Ólafs Darra hefur skinið skært undanfarið en hann átti eftirminnilegan leik í kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty og sjónvarpsþáttunum True Detective.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×