Fótbolti

Benzema vill Pogba til Real Madrid

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Pogba gæti slegið í gegn á HM
Pogba gæti slegið í gegn á HM vísir/getty
Karim Benzema framherji Real Madrid vill að félagi sinn í franska landsliðinu í fótbolta, Paul Pogba, gangi til liðs við Real Madrid í sumar en miðjumaðurinn ungi er mjög eftirsóttur.

Pogba átti frábært tímabil fyrir Juventus í vetur og er nú sterklega orðaður við Real Madrid, PSG og Chelsea.

„Hann er ungur og leikur fyrir stórt evrópskt félag. Hann verður betri með hverjum leiknum sem líður og er orðinn góður og mun halda áfram að vinna af krafti,“ sagði Benzema um landa sinn.

„Ég myndi vilja fá hann til Madridar vegna þess að hann er franskur og getur orðið frábær leikmaður.“

Reikna má með að Benzema og Pogba verði lykilmenn í liði Frakklands á HM en liðið er í riðli með Sviss, Ekvador og Hondúras.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×