Fótbolti

Ronaldo og Bale klárir í úrslitaleikinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, hefur staðfest að þeir Cristiano Ronaldo og Gareth Bale verði með í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu um helgina.

Real mætir grönnum sínum í Atletico Madrid á laugardagskvöldið en úrslitaleikurinn fer fram í Lissabon.

Ronaldo hefur misst af síðustu tveimur leikjum Real vegna meiðsla en Bale missti af æfingu liðsins í dag.

„Þeir munu báðir spila,“ sagði Ancelotti. „Það er það sem mestu máli skiptir.“ Varnarmaðurinn Pepe og Karim Benzema eru þó enn tæpir.


Tengdar fréttir

Ronaldo meiddist og Real Madrid náði bara jafntefli

Real Madrid náði bara 1-1 jafntefli á móti Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en Real-menn átti möguleika á því að minnka forskot nágrannanna í Atlético Madrid í tvö stig með sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×