Fótbolti

Luís Enrique: Ekki bera mig saman við Guardiola

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Luís Enrique ræðir við blaðamenn í dag.
Luís Enrique ræðir við blaðamenn í dag. Vísir/getty
Luís Enrique, nýr þjálfari spænska stórliðsins Barcelona, sat fyrir svörum á sínum fyrsta blaðamannafundi á Nývangi í dag. Hann var ráðinn eftirmaður Tata Martino á mánudaginn.

Enrique, sem er 44 ára gamall, spilaði 207 deildarleiki fyrir Barcelona á átta árum frá 1996-2004. Þar spilaði hann með Pep Guardiola, fyrrverandi þjálfara Barcelona, sem gerði ótrúlega hluti með liðið og skrifaði nýjan kafla í knattspyrnusöguna.

„Vinsamlegast ekki bera mig saman við Pep núna. Ég vona það gerist samt í framtíðinni því það þýðir að við séum að vinna titla. Er ég kvíðinn fyrir verkefninu hjá Barcelona? Alls ekki. Þetta er einn besti dagur lífs míns,“ sagði Enrique í dag.

Aðspurður hvort hann myndi halda áfram að spila 4-3-3-leikkerfið svaraði Enrique: „Ég mun spila kerfi sem hentar þeim leikmönnum sem ég hef og fær það besta út úr þeim.“

Þarna mun Enrique eyða miklum tíma á næstu árum ef allt fer vel.Vísir/getty
Enrique er ekki uppalinn hjá Barcelona hendur Sporting Gijón. Það sem meira er kom hann til félagsins frá Real Madrid þannig hann þekkir ekki unglingastarf Börsunga inn og út eins og Guardiola. Hann lofar þó að gefa yngri leikmönnum áfram tækifæri og er spenntur fyrir því.

„Ég elska að styðja við unga leikmenn en ég krefst þess að þeir sýni hungur og metnað. Dyrnar standa opnar öllum leikmönnum B-liðsins og yngri leikmönnum félagsins,“ sagði Enrique.

Hann vildi lítið ræða mál einstakra leikmanna en spilari eins og CescFábregas er orðaður við brottför til Manchester United annað árið í röð.

„Við ræðum ekki nein nöfn núna. Við þurfum ekki að taka neinar ákvarðanir að svo stöddu. Það gefst tími til þess.“

Einnig er óvíst hvort Xavi verði áfram í herbúðum liðsins og þá gæti Argentínumaðurinn Javier Mascherano tekið við fyrirliðabandinu.

„Ég þekki Xavi. Hann er vinur minn og fyrrverandi liðsfélagi. Við munum setjast niður með honum og ræða málin. Bíðum bara og sjáum hvað gerist. Mascherano hefur svo allt til brunns að vera til að verða fyrirliði. Góðir og mikilvægir leikmenn munu vera áfram hjá liðinu,“ segir Luís Enrique.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×