Skoðun

Úlfarsárdalur: Fimm stjörnu hótel!

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar
Framboðin fyrir komandi borgarstjórnarkosningar hafa verið spurð um afstöðu sína til einstakra mála, þar á meðal til uppbyggingar í Úlfarsárdal. Undirritaður hefur mætt á íbúafund þar til að kynna áherslur Dögunar.

Verkefnið framundan

Í stuttu máli er það svo að við erum hlynnt skynsamlegri þéttingu byggðar.  En það sem skiptir mestu máli er að reyna eftir megni að blanda  byggðina þannig að hverfin verði sem mest sjálfbær. Það á við um Úlfarsárdal sem önnur svæði. Sjálfsagt myndu íbúarnir skipuleggja borgina öðruvísi ef núna ætti að skapa 120 000 manna byggð en borgin er eins og hún er, teygir sig upp í Norðlingaholt og út á Kjalarnes og verkefnið er að þróa hana alla.

Áherslur Dögunar

Framboð Dögunar í Reykjavík vill að:



  • Borgin verði byggð upp í samræmi við vilja og þarfir íbúanna. Þétting byggðar verði ekki til þess að ónýta götumyndir, byggðarmynstur eða mikilvæg opin svæði né heldur til að rýra verðgildi  þeirra eigna sem fyrir eru.
  • Dögun í Reykjavík vill að uppbygging borgarinnar eigi sér stað fyrir austan Elliðaár sem og vestan.
  • Aðalskipulag verði endurskoðað með tilliti til þéttingar byggðar á ýmsum svæðum í Reykjavík, s.s. áætluð þétting byggðar í Elliðaárdalnum.
  • Almenningssamgöngur verði stórefldar í Reykjavík og forgangsakreinar fyrir Strætó verði settar í öll hverfi.
Til að hverfi teljist sjálfbært þarf meðal annars skóla, leikskóla, aðstöðu fyrri íþróttir og tómstundir, bókasafn, góðar almenningssamgöngur, verslanir, veitingastaði og atvinnu og svo almennilega þjónustumiðstöð borgarinnar.

Í huga umhverfisverndar -  og félagshyggjufólks er sjálfbært hverfi, þannig skipulagt að íbúarnir verði ekki að sækja sér grunnþarfir annað. Þannig verði ferðalög lágmörkuð.

Komist Dögun í Reykjavík til áhrifa mun framboðið stuðla að því að öll hverfi borgarinnar verði sem sjálfbærust og íbúarnir kjósi sér fulltrúa í hverfisráð sem stjórni í þeirra nafni. Og allt sem tilheyrir nærumhverfinu verði flutt í þangað.

Forsendubrestur í Úlfarsárdal!

Ekkert hverfi í Reykjavík hefur orðið fyrri jafn miklum forsendubresti og Úlfarsárdalur  og  borgaryfirvöld ættu að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bæta fyrir hann. Það er kominn tími til að hætta að tala þetta hverfi niður. Byggð í skjólgóðum og sólríkum suðurhlíðum, áin og góðar samgöngutengingar, allt þetta gerir það að verkum að Úlfarsárdalurinn getur orðið að 5 stjörnu hverfi svo notað sé líkingamál úr heimi hótelrekstrar.

Ég sé fyrir mér …

Brýnt er að skipuleggja fleiri lóðir, ég sé ég fyrir mér lágreista byggð – raðhús ekki síður en blokkir og einbýlishús. Þetta þarf að markaðssetja upp á nýtt sem hverfi þar sem gott verður að ala börn upp.

Þannig verður líka hægt að nýta þá innviði sem lagðir voru fyrir mun stærra hverfi og yrðu ella vannýttir, samfélaginu til mikils tjóns. 




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×