Bíó og sjónvarp

Adam Sandler fær skelfilega útreið

Adam Sandler
Adam Sandler Vísir/Getty
Nýjasta kvikmynd grínistans Adams Sandler, Blended, hefur ekki fallið í kramið hjá gagnrýnendum vestanhafs.

A.O. Scott, virtur kvikmyndagagnrýnandi fyrir New York Times, sagði myndina beinlínis móðgandi við áhorfendur og sagði augljóst vanhæfi aðstandenda myndarinnar skína í gegn, og vísaði þar í alla umgjörð myndarinnar og handritið. 

„Myndin er forheimskandi,“ bætti hann við.

Scott er ekki eini gagnrýnandinn sem hefur úthúðað myndinni, sem Drew Barrymore leikur í ásamt Sandler. 

Í gagnrýni the Telegraph kallar Anna Smith myndina tilgerðarlega og ótrúverðuga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×