Fótbolti

Myndband: Mark ársins í Noregi og ótrúlegt klúður hjá Birni Bergmanni

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/getty
Molde og Haugasund skildu jöfn í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær, 1-1. Sjáið ótrúlegt jöfnunarmark og klúður Bjarnar Bergmanns í meðfylgjandi myndbandi.

Björn Bergmann Sigurðarson fékk sannkallað dauðafæri til að koma Molde í 2-0 snemma í seinni hálfleik.

Klúðrið reyndist dýrt því Alexander Stoelaas jafnaði metin fjórum mínútum fyrir leikslok með sannkölluðu draumamarki beint úr aukaspyrnu af löngu færi.

Sjá má markið og klúðrið auk annarra helstu atriða úr leiknum með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×