Bíó og sjónvarp

Absolutely Fabulous-mynd í bígerð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Jennifer Saunders tilkynnti að kvikmynd byggð á sjónvarpsþáttunum Absolutely Fabulous væri í bígerð þegar hún kynnti nýjustu bók sína, Bonkers: My Life in Laughs, á Hay-hátíðinni í Wales.

„Ég er að skrifa handritið í þessum töluðu orðum - þetta er í bígerð,“ sagði hún við gesti hátíðarinnar. 

„Ég vona að hún verði sýnd í lok næsta árs,“ bætti Jennifer við.

Þættirnir Absolutely Fabulous voru frumsýndir í Bretlandi árið 1992 og voru áhorfendur kynntir fyrir persónunum Edina Monsoon, sem Jennifer lék, og Patsy Stone, sem Joanna Lumley túlkaði. Edina og Patsy voru vægast sagt sérstakar og kitluðu hláturtaugar sjónvarpsáhorfenda til ársins 1995 þegar sýningum lauk. Þær komu saman aftur árið 2001 og voru tvær þáttaraðir sýndar til ársins 2004.

Tvíeykið sneri aftur árið 2012 og gerði þrjá þætti til að fagna tuttugu ára afmæli þáttanna.

Fjölmargir þekktir einstaklingar léku aukahlutverk í þáttunum, þar á meðal Whoopi Goldberg, Helena Bonham Carter, Kate Moss, Naomi Campbell, Jesse Tyler Ferguson og Idris Elba.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×