Körfubolti

Cuban vill að Spurs vinni titilinn og Duncan hætti

Cuban er alltaf líflegur.
Cuban er alltaf líflegur.
Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, þolir ekki Tim Duncan. Finnst hann vera leiðinlegur, nennir ekki að horfa á hann spila en vill samt að hann verði meistari í ár.

Ástæðan er ósköp einföld. Duncan er búinn að slá Mavericks svo oft út úr úrslitakeppninni að Cuban nennir ekki að upplifa það aftur.

"Ég vil að San Antonio verði meistari. Ég vil að Duncan skori sigurkörfuna í oddaleik, fagni, hlaupi út og komi aldrei aftur," sagði Cuban í útvarpsviðtali.

Honum gæti orðið að ósk sinni enda er Spurs að spila mjög vel og Duncan í fantaformi. Reyndar svo góðu formi að það er mjög líklegt að hann snúi aftur næsta vetur, sama hvernig fer núna.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×