Skoðun

Eflum íþróttir – Horfum til framtíðar

Willum Þór Þórsson skrifar
Uppruna Framsóknarflokksins má m.a. rekja til ungmennafélaganna sem þegar í upphafi síðustu aldar börðust fyrir almennum umbótum, aukinni menntun og bættu mannlífi í gegnum samvinnu og öflugt félagsstarf.   Þannig er íþrótta- og æskulýðsstarf samofið sögu Framsóknarflokksins.   Þegar grannt er skoðað má sjá þátt Framsóknarmanna í þeirri gríðarmikilli uppbyggingu mannvirkja og íþróttalífs í Kópavogi.  Það þróttmikla og fjölmenna starf sem á sér stað í HK, Breiðabliki og Gerplu ber þessari uppbyggingu glöggt merki.   Þá er athyglisvert starfið í Íþróttafélaginu Glóð, sem  verður 10 ára í ár. Kjörorð þeirra; hreyfing, fæðuval, heilsa, ætti að vera okkur öllum til eftirbreytni.  Stærsta reiðhöll landsins opnaði á árinu á Kjóavöllum og það verður að hrósa hestamannafélaginu Spretti fyrir kraft og dugnað við að reisa þetta glæsilega mannvirki sem á án vafa á eftir að efla hestamennskuna á svæðinu.  Það er um leið mikilvægt að Kópavogsbær komi að því með myndarlegum hætti að tryggja stöndugan rekstur þessa mikla mannvirkis.

Íþrótta- og ungmennafélög eru fjölskyldu- og félagsmiðstöðvar nútímasamfélags og þar þurfum við að horfa til hönnunar og aðstöðu til að tryggja að þær geti með þeim hætti sinnt hlutverki sínu bæði hvað varðar íþróttaiðkunina sjálfa og svo það félagslega starf sem því fylgir. Kjarninn í öllu þessu félagsstarfi hvílir á herðum sjálfboðaliða, sem löngum hefur skipað veglegan sess í öllu okkar félagsstarfi.  Starfsemin skilar miklum almannagæðum til okkar samfélags og þá er hægt að vitna til fjölmargra rannsókna sem staðfesta forvarnargildi íþrótta og að þátttaka barna og unglinga í skipulögðu íþróttastarfi dregur úr líkum á hvers konar frávikshegðun. Þannig hafa rannsóknir m.a. sýnt að þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi hefur jákvæð áhrif á námsárangur, sjálfsmynd, sjálfsvirðingu, líkamsmynd, heilsu og almenna líðan.  Í nýlegri rannsókn sem sem unnin var af Rannsóknum og Greiningu fyrir fræðslusvið ÍSÍ kemur m.a. fram að unglingar sem stunda íþróttir með viðurkenndu íþróttafélagi eru líklegri til að standa sig betur í íslensku og stærðfræði.  Sjálfsmynd þeirra er sterkari og þessir krakkar eru almennt hamingjusamari og ánægðari með líf sitt.

Við teljum því mikilvægt að verja sjálfboðaliðastarfið í íþróttahreyfingunni og efla mannvirkjagerð.  Í þeim tilgangi lögðum við Framsóknarmenn, á liðnu þingi, fram þingsályktunartillögu sem felur fjármála- og efnahagsráðherra að taka til endurskoðunar virðisaukskattsumhverfi íþróttahreyfingarinnar.  Tillagan er tvíþætt og felur í sér að íþrótta- og ungmennafélög verði undanþegin virðisaukaskatti að öllu leyti og að þau fái jafnframt heimild til að fá endurgreiddan virðisaukaskatt af byggingu íþróttamannvirkja.  Meginmarkmiðið er að ríkisstjórnin komi að því að efla skipulagða íþróttastarfsemi og þátttöku foreldra og annarra sjálfboðaliða í því starfi, verja sjálfboðaliðastarfið og efla mannvirkjagerð.

Þannig viljum við Framsóknarmenn á báðum stjórnsýslustigum, ríkis og sveitarfélaga, halda áfram að vinna að uppbyggingu íþróttamannvirkja og efla skipulagt íþrótta- og tómstundastarf.  Þá viljum við hjálpa fjölskyldum bæjarins við að styðja og hvetja börnin sín til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi með betra frístundakorti til handa ungum sem öldnum.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×