Bíó og sjónvarp

Leikstjóri Searching for Sugar Man látinn

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Malik Bendjelloul var 36 ára.
Malik Bendjelloul var 36 ára. vísir/afp
Sænski kvikmyndaleikstjórinn Malik Bendjelloul lést í Stokkhólmi í dag. Hann var 36 ára og vann kvikmynd hans, Searching for Sugar Man, Óskarsverðlaunin í fyrra fyrir bestu heimildarmynd.

Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp en að sögn lögreglunnar í Stokkhólmi er ekki talið að dauða hans hafi borið að með saknæmum hætti.

Searching for Sugar Man sagði sögu þjóðlagasöngvarans Sixto Rodriguez og hlaut mikið lof gagnrýnenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×