Körfubolti

Bubba fékk sigurskóna frá Durant | Myndband

Oklahoma City Thunder komst í úrslit vesturdeildar NBA í nótt með 104-98 sigri á Los Angeles Clippers. OKC mætir San Antonio Spurs í úrslitum vestursins.

Kevin Durant fór á kostum enn eina ferðina fyrir Oklahoma City en hann skoraði 39 stig og tók 16 fráköst.

Durant fór í sjónvarpsviðtal eftir leikinn en að því loknu fór hann úr skónum og hljóp í átt að hliðarlínunni.

Þar beið kylfingurinn BubbaWatson, sigurvegari á Masters-mótinu í ár, spenntur en Durant gaf honum sigurskóna.

Durant skellti svo í nokkrar spaðafimmur og þrjú faðmlög áður en hann lagði af stað inn í búningsklefa á sokkunum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×