Fótbolti

Neymar og Messi eru bestu vinir

Neymar og Messi fagna.
Neymar og Messi fagna.
Brasilíumaðurinn Neymar er að klára sína fyrstu leiktíð með Barcelona og hefur honum gengið upp og ofan.

Margir voru spenntir fyrir því að sjá hann spila með Lionel Messi. Þeir hafa fengið færri tækifæri en þeir vildu enda báðir verið að glíma við meiðsli í vetur.

Neymar segir að þeir félagar nái vel saman, innan vallar sem utan.

"Við höfum ekki getað spilað alla leiki saman en mér finnst við sífellt ná betur saman. Okkar samband er frábært," sagði Neymar.

"Sumir sögðu að við myndum ekki geta orðið vinir en þeir höfðu rangt fyrir sér. Hann er mjög rólegur og indæll. Hann er stjarna sem ég lít mikið upp til."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×