Bíó og sjónvarp

Brad Pitt og Angelina Jolie leika saman á ný

Brad Pitt og Angelina Jolie
Brad Pitt og Angelina Jolie Vísir/Getty
Brad Pitt og Angelina Jolie felldu hugi saman við tökur á kvikmyndinni Mr. and Mrs. Smith, árið 2005. Nú virðist sem svo að önnur kvikmynd sem parið kemur til með að leika saman í, sé í pípunum.

Samkvæmt vef Deadline, hefur stjörnuparið skrifað undir samning um að þau munu leika saman í kvikmynd eftir handriti sem Jolie skrifaði. Enn sem komið er hefur engu um myndina verið lekið í fjölmiðla, þó að vangaveltur séu uppi um að myndin fjalli um vandamál í samböndum, samkvæmt vef The Hollywood Reporter.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×