Bíó og sjónvarp

Rænir skyndibitastað með bréfpoka á hausnum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Melissa McCarthy fer á kostum í nýrri stiklu úr kvikmyndinni Tammy sem er frumsýnd vestan hafs þann 2. júlí næstkomandi.

Stórleikkonurnar Susan Sarandon og Kathy Bathes sjást einnig í stiklunni en mikil spenna ríkir fyrir kvikmyndinni.

Myndin fjallar um konu sem fer yfir um þegar hún er rekin úr starfi sínu á skyndibitastað og kemur að eiginmanni sínum að halda framhjá. Brátt er hún orðinn flóttamaður og leitar skjóls hjá móður sinni.

Í meðfylgjandi stiklu sést Tammy ræna skyndibitastaðinn með bréfpoka á hausnum. Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×