Fótbolti

Púðurskot hjá Barcelona

Messi er í strangri gæslu í dag.
Messi er í strangri gæslu í dag.
Barcelona missteig sig í kvöld er það náði ekki að skora gegn Elche sem var að berjast fyrir lífi sínu í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona á samt enn möguleika á titlinum.

Barcelona getur þakkað Malaga fyrir það en Malaga nældi í jafntefli gegn Atletico. Það verður því hreinn úrslitaleikur á milli Barcelona og Atletico um titilinn.

Leikur Barcelona í dag var ekki til útflutnings. Stanslaust dútl með boltann og fátt um færi. Börsungar voru síðan heppnir að  Elche skildi ekki stela sigrinum undir lokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×