Bíó og sjónvarp

Josh Hartnett er snúinn aftur

Josh Hartnett
Josh Hartnett Vísir/Getty
Leikarinn Josh Hartnett hefur lítið leikið að undanförnu, en ekki vegna þess að honum eru ekki boðin hlutverk.

Í viðtali við Details segist Hartnett hafa afþakkað hlutverk Supermans í kvikmyndinni Superman Returns, Spider-Man og Batman.

„Já, ég var í viðræðum um hlutverk Spider-Man. Og Batman,“ sagði Hartnett. „En ég bara vissi einhvernveginn að þessi hlutverk myndu skilgreina mig sem leikara, sem myndi fylgja mér allan ferilinn. Ég var bara 22 ára, en ég gerði mér grein fyrir þeirri hættu.“

Hartnett segist í viðtalinu hafa horfið frá hlutverkum í vinsælum kvikmyndum eftir velgengni Pearl Harbor og Black Hawk Down, en honum þótti athyglin sem hann fékk í kjölfarið óþægileg. Hann tók sér átján mánuði til þess að snúa aftur heim og endurnýja kynnin við gamla vini. Hartnett hefur síðan snúið aftur til Hollywood, en nánast eingöngu leikið í litlum, sjálfstæðum framleiðslum síðan. 

En nú hefur orðið breyting á, því Hartnett leikur hlutverk í nýju hryllingsseríunni Penny Dreadful.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×