Bíó og sjónvarp

Amy Poehler og Paul Rudd í nýrri kvikmynd

Amy Poehler og Paul Rudd leika saman í nýrri rómantískri gamanmynd sem heitir They Came Together.

Myndin er skopstæling á hefðbundinni rómantískri gamanmynd, en henni er leikstýrt af David Wain, sem hefur áður leikstýrt kvikmyndum á borð við Wet Hot American Summer og Role Models.

Ásamt Poehler og Rudd bregður fleiri stjörnum fyrir í sýnishorninu sem fylgir fréttinni, en helst má nefna þau Cobie Smulders, Ellie Kemper, Bill Hader, Kenan THompson, Jack McBrayer, Ken Marino, Michael Ian Black og Jason Mantzoukas.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×