Bíó og sjónvarp

Fyrsta "væn“ Roberts De Niro

Vísir/Getty
Leikarinn heimsfrægi, Robert De Niro hefur leikið í tugum kvikmynda og sjónvarpssería á ferlinum, en hans fyrsta hlutverk í svokölluðu „væni“ varð ekki fyrr en í síðustu viku.

Internetstjarnan og Íslandsvinurinn Jerome Jarre, sem hefur gert garðinn frægan á samfélagsmiðlinum Vine, deildi á síðu sinni á dögunum sex sekúndna myndbandi af Óskarsverðlaunahafanum De Niro, en hann er einnig einn meðstofnanda Tribeca-kvikmyndahátíðarinnar í New York sem nú er í fullum gangi.

Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×