Bíó og sjónvarp

Tók upp líf drengs í tólf ár

Neðar í fréttinni má sjá sýnishorn úr metnaðarfullri kvikmynd Richards Linkater, Boyhood.

Linklater hóf að taka upp hinn sjö ára gamla Ellar Coltrane árið 2002, og gerði það reglulega í 12 ár þar á eftir.

Kvikmyndin er þroskasaga ungs drengs og er ekki byggð á raunverulegum atburðum, en Linklater hefur sannarlega lagt mikið í það að efnið sé sem raunverulegast.

Ethan Hawke leikur pabbann í myndinni og Patricia Arquette leikur móðurina.

Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×